Metnaðarfull dagskrá í endurmenntun kennara
Árlegum endurmenntunardögum grunnskólakennara lauk í gær en í ár voru dagarnir samstarfsverkefni Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar. Dagarnir eru mikilvægur liður í að afla nýrrar þekkingar, deila reynslu og efla það faglega starf sem fram fer í skólunum.
Endurmenntunardagarnir voru vel heppnaðir og þátttaka góð í þeim námskeiðum, fyrirlestrum og vinnusmiðjum sem voru í boði, en um 140 kennarar tóku þátt.
Dagskráin samanstóð af fjölbreyttum erindum sérfræðinga og reynslumikils starfsfólks um bekkjarstjórn og skipulag kennslurýmis, áföll barna, málþroskaröskun, hvernig mæta má stuðningsþörfum barna með ADHD og einhverfu, áhættuþætti ungmenna og verndandi þætti, samvinnu, leiðir til að efla foreldrasamskipti, jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu.
Mikil ánægja var með dagana og samstarf sveitarfélaganna gaf kost á bæði fjölbreyttari dagskrá og sameiginlegu samtali um skólastarf.

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015