Leiðbeiningar fyrir rútuheimsóknir vegna almyrkva
Á miðvikudag verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Akranesi. Almyrkvinn mun standa í um 1 mínútu og 7 sekúndur hér á Akranesi. Deildarmyrkvinn hefst klukkan 16:46:49 og almyrkvinn klukkan 17:47:50.
Akraneskaupstaður biður þau rútufyrirtæki sem hyggjast sækja Akranes heim þennan dag að láta vita af komu sinni með því að senda póst netfangið info@akranes.is til utanumhalds og leiðbeininga.
Fjölmargir fallegir staðir koma til greina fyrir þá sem vilja fylgjast með sólmyrkvanum á Akranesi, en áhugasömum er sérstaklega bent á Breiðina og Langasand. Þar er nóg pláss, fallegt umhverfi og gott útsýni.
Við Breiðina verður götulokun við Lambhúsastíg til að forðast umferðaröngþveiti og lágmarka ljósmengun á svæðinu. Hægt verður að leggja rútum á svæðinu innan bláa rammans sem sjá má á myndinni hér fyrir neðan. Þaðan er um 400 metra gangur eftir göngustíg að Akranesvita. Skúrinn verður opinn og salernin sömuleiðis.
Íbúar sem vilja njóta þess að fylgjast með sólmyrkvanum við Akranesvita eru hvattir til að ganga eða hjóla á staðinn eða nýta bílastæði við enda Vesturgötu eða Bíóhöll.

Við Langasand verður einstefna á Innnesvegi á kaflanum sem sjá má á meðfylgjandi mynd og þar verður hægt að leggja rútum.
Háflóð verður á Langasandi á meðan á sólmyrkvanum stendur, en hægt verður að fylgjast með af göngustígnum ofan við sandinn og æfingasvæðinu. Salerni verða opin í nýja íþróttahúsinu við Jaðarsbakka og við Guðlaugu.

Verið velkomin á Akranes.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015