Laufey Skúladóttir er fjallkonan í ár
Fjallkona Akraness í ár er Laufey Skúladóttir. Laufey flutti ljóðið Drög að heimkomu eftir Orra Harðarson, bæjarlistamann Akraness árið 2025 sem féll frá síðasta sumar langt fyrir aldur fram. Laufey var líka fjallkona Akraness fyrir 50 árum, þann 17. júní 1976.
Laufey fæddist í Reykjavík þann 21. mars árið 1958, sú fjórða í röð átta systkina. Foreldrar Laufeyjar voru Ragna Svavarsdóttir húsmóðir og dagmóðir og Skúli Benediktsson kennari.

Laufey flutti með fjölskyldu sinni til Akraness frá Ólafsvík árið 1966. Eftir skyldunám lá leiðin í gagnfræðaskóla Akraness, svo í Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem hún lauk verslunarprófi og að lokum í Kennaraháskóla Íslands.
Starfsferillinn hófst á tíunda ári þegar hún vann við barnapössun og blaðaútburð. Eins vann hún við fiskvinnslu, bókhaldsstörf og verslunarstörf. Lengst af starfaði hún sem kennari við Brekkubæjarskóla, eða í 24 ár.
Laufey hefur mikinn áhuga á tónlist, lestri og handavinnu en skemmtilegast þykir henni að stússast með börnum og barnabörnunum sínum sinnir hún af einskærri alúð.
Þau hjónin eiga sumarbústað í Svínadal og þar þykir Laufeyju gott að dunda sér á sumrin í sumarylnum, helst með nokkur prjónaverkefni í höndum sér.
Hér fyrir neðan má sjá mynd af Laufeyju frá því hún var fjallkona árið 1976.

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015