Fara í efni  

Kynningarfundur um fyrirhugaða rannsóknarholu á Akranesi

Akraneskaupstaður og Veitur boða til kynningarfundar um fyrirhugaða borun rannsóknarholu á Akranesi. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 11. mars, kl. 17:00, í sal Grundaskóla á Akranesi.

Á kynningarfundinum verður farið yfir fyrirhugaðar framkvæmdir, markmið rannsóknarinnar og umhverfisþætti verkefnisins. Að lokinni kynningu gefst fundargestum kostur á að kynna sér málið nánar, spyrja spurninga og koma á framfæri ábendingum áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið.

Markmið verkefnisins er að bora rannsóknarholu niður á um 800–1.200 metra dýpi til að staðfesta tilgátu um að jarðhita sé að finna á svæðinu og kanna hvort þar sé nýtanleg jarðhitaauðlind. Eftirspurn eftir heitu vatni fyrir Akraneskaupstað hefur aukist á undanförnum árum samhliða vexti samfélagsins. Með rannsókninni vilja Veitur kanna möguleika á að styrkja Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar og auka þannig aflgetu hennar til framtíðar.

Gert er ráð fyrir að borframkvæmdir fari fram vorið 2026 og að bortími verði á bilinu 6–10 vikur. Framkvæmdasvæðið verður merkt í samræmi við merkingaráætlanir og gert er ráð fyrir að skolvatni frá borun verði veitt í gegnum grjótgarðinn við Langasand. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er skolvatnið talið hættulaust fyrir umhverfið.

Borunin mun hafa í för með sér tímabundinn hávaða en gert er ráð fyrir mótvægisaðgerðum til að lágmarka truflun fyrir nærliggjandi íbúa. Meðal annars er áformað að setja gáma meðfram borplaninu að norðanverðu á milli borplans og íbúðarhúsnæðis til að mynda hljóðmön sem dregur úr hávaða frá framkvæmdinni.

Umsóknin var tekin fyrir á fundi skipulags- og umhverfisráðs 6. febrúar 2026. Framkvæmdaleyfið var grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum við Jaðarsbraut, Höfðabraut og Garðabraut. Tvær athugasemdir bárust ásamt umsögn frá heilbrigðiseftirliti. Í ljósi þess ákvað skipulags- og umhverfisráð að fresta afgreiðslu málsins og halda sameiginlegan kynningarfund með Veitum.

Áhugasamir eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðunni.

Viðburðurinn á Facebook


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu