Kvikmyndaverkefni og myndatökur í bænum
Það er ýmislegt um að vera á Skaganum þessa dagana. Eins og fram hefur komið var bæði Litla kartöfluhátíðin og opin æfing hljómsveitarinnar Quarashi í Bíóhöllinni um helgina, en nú hefur kvikmyndatökulið hreiðrað um sig í bænum. Auk þess hafa að undanförnu birst myndir úr nýrri auglýsingaherferð 66°Norður í fjölmiðlum og á auglýsingaskiltum sem voru teknar víða um Akranes, til að mynda í miðbænum og í Guðlaugu.
Vegfarendur í miðbænum ráku upp stór augu þegar sjá mátti fornbíla og fólk ríða um göturnar á hestum í morgun. Ástæðan er tökur á þýskri kvikmynd sem gerist á níunda áratug síðustu aldar. Af þeim sökum verða ákveðin svæði, götur og mannvirki tímabundið færð í svip þess tíma sem myndin gerist á en áætlað er að tökurnar standi yfir til 23. september.

Meðan á tökum stendur má búast við tímabundnum truflunum á umferð, stuttum lokunum og takmörkuðu aðgengi að einstökum svæðum. Kvikmyndatökuteymið mun leitast við að halda truflunum í lágmarki og verður umferð hleypt í gegn þegar aðstæður leyfa. Vegfarendur eru hvattir til að sýna tökuliðinu tillitssemi og fara eftir leiðbeiningum umferðarstjóra á tökustöðum.
Það er ánægjulegt að Akranes fái að gegna hlutverki í alþjóðlegri kvikmyndagerð og vonum við að íbúar hafi gaman af því að sjá bæinn bregða sér í hlutverk frá liðinni tíð.
Við þökkum íbúum og gestum fyrir þolinmæðina, skilninginn og gott samstarf meðan á tökum stendur.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015