Jarðhitaleit við Jaðarsbraut að hefjast
Undirbúningur vegna rannsóknarborunar Veitna eftir jarðhita við Jaðarsbraut á Akranesi er nú að hefjast. Stefnt er að því að fyrstu vörubílar komi á framkvæmdasvæðið í næstu viku vegna undirbúnings borplans.
Akraneskaupstaður hefur gefið út framkvæmdaleyfi vegna borunar rannsóknarholu við hlið bílastæðis við enda Jaðarsbrautar, vestan við fótboltavöll Skagamanna. Tilgangur framkvæmdarinnar er að kanna hvort nýtanleg jarðhitaauðlind sé til staðar á Akranesi. Holan verður boruð niður á um 800–1.200 metra dýpi.
Eftirspurn eftir heitu vatni fyrir Akranes og Borgarfjörð hefur aukist og er rannsóknarborunin liður í undirbúningi Veitna að frekari öflun heits vatns fyrir veituna.
Undirbúningur framkvæmda
Undirbúningur er nú á lokametrunum. Ástandsskoðun fasteigna í næsta nágrenni framkvæmdasvæðisins er að mestu lokið og hefur Verkís annast hana fyrir hönd Veitna.
Hönnun tenginga fyrir rafmagn og vatn er jafnframt nærri lokið. Samkvæmt upplýsingum frá Veitum eiga framkvæmdirnar ekki að hafa áhrif á afhendingu vatns eða rafmagns til íbúa og fyrirtækja meðan á þeim stendur.
Framkvæmdasvæðið verður girt af og merkt til að tryggja öryggi vegfarenda. Gert er ráð fyrir að áhrif á aksturs- og gönguleiðir verði sem minnst. Mest umferðaraukning verður við undirbúning framkvæmdanna og aftur við frágang svæðisins.
Borvatn og Langisandur
Fráveituvatn frá borstað verður leitt til vesturs í gegnum grjótgarða við Faxabraut áður en það rennur til sjávar. Unnið er að útfærslu lagna með það að markmiði að tryggja öryggi þar sem þær þvera göngustíga og er gert ráð fyrir að göngustígar verði áfram opnir.
Skolvatn frá borun verður leitt um svarfþró þar sem stærstur hluti borsvarfs sest til áður en vatninu er veitt áfram um grjótgarð og út í fjöru. Áhrifamat sem fylgdi umsókninni komst að þeirri niðurstöðu að framkvæmdin væri ekki líkleg til að hafa neikvæð áhrif á viðkomandi grunnvatns- eða strandsjávarhlot.
Hávaði og mótvægisaðgerðir
Boruninni fylgir tímabundinn hávaði. Til að draga úr áhrifum hans verður m.a. komið fyrir gámum norðan við borplanið, milli framkvæmdasvæðisins og nærliggjandi íbúðarhúsnæðis, þannig að þeir myndi hljóðmön.
Akraneskaupstaður og Veitur munu áfram eiga samráð um framkvæmdina og verður íbúum í nágrenni svæðisins miðlað frekari upplýsingum eftir því sem framkvæmdum vindur fram.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





