Jarðhitaleit fyrirhuguð á Akranesi
Veitur hafa óskað eftir leyfi til að bora rannsóknarholu til að leita eftir heitu vatni á Akranesi, nánar tiltekið við Jaðarsbakka. Tilgangurinn er að freista þess að tryggja heitt vatn til húshitunar í vaxandi samfélagi. Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum í gær að grenndarkynna framkvæmdaleyfið.
Framkvæmdin verður í grenndarkynningu frá 4. febrúar til 4. mars og hægt verður að senda inn athugasemdir í gegnum Skipulagsgátt. Rétt er að minna á að tekið hefur verið upp nýtt fyrirkomulag varðandi grenndarkynningar, þær berast ekki lengur með hefðbundnum pósti frá Íslandspósti heldur eru þær nú sendar beint í pósthólf viðkomandi aðila á Island.is.
Í frétt á vef Veitna segir: “Það eru spennandi tímar framundan á Akranesi þar sem Veitur hafa hug á að bora rannsóknarholu til að leita eftir heitu vatni á Akranesi til að tryggja heitt vatn til húshitunar í vaxandi samfélagi.”
Þar segir einnig að tveir staðir séu taldir líklegastir til að finna heitt vatn, annars vegar við Skarðsbraut, nær Innnesvegi, en hins vegar við Jaðarsbakka við bílastæðið við Langasand. “Veitur og ÍSOR telja að við Jaðarsbakka sé hugsanlega að finna hvoru tveggja, vatn og varma, í nýtanlegu magni til að auka afhendingaröryggi hitaveitunnar á Akranesi. Nýtanleg hola myndi bæta við forða hitaveitunnar til að mæta aukinni orkuþörf í vaxandi samfélagi.”
Veitur eru með skýra tímalínu fyrir borun á rannsóknarholu við Jaðarsbakka. Áætlun gerir ráð fyrir að borun taki sex vikur. Frágangi á svæðinu á að ljúka fyrir mánaðamótin maí-júní. en Veitur hafa ákveðið að ef tímaramminn fyrir undirbúning verður knappur þá verði borun frestað til hausts.
“Snyrtileg aðkoma og umhverfi við náttúruperluna Langasand er í fyrirrúmi á meðan framkvæmd stendur og frágangur eftir að henni lýkur skal vera til fyrirmyndar.”
Áhersla er lögð á öryggi vegfarenda, sér í lagi barna, og starfsfólks á svæðinu. Stórar vinnuvélar verða á staðnum á meðan undirbúningi stendur, en þegar borinn hefur verið settur upp verður umferð lítil. Þegar borun lýkur verður holunni lokað með öruggum hætti þannig að engin hætta stafi af.
Borinn sem notaður verður við framkvæmdina er rafknúinn og þar af leiðandi mun hljóðlátari en borar sem almennt hafa verið notaðir. Allra nánasta umhverfi mun þó heyra í bornum og Veitur gera það sem hægt er til að takmarka hljóðin sem berast.
Veitur telja nokkrar líkur á að heitt vatn finnist á þessum stað á Akranesi og í því magni að það sé góð viðbót við hitaveituna á Skaganum. Ef heitt vatn finnst fer í framhaldinu fram samtal við Akraneskaupstað um nýtingu og breytingar á skipulagi.
Nánari upplýsingar má finna á vef Veitna með því að smella hér.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





