Fara í efni  

Jaðarsbakkalaug lokuð þessa vikuna

Jaðarsbakkalaug er lokuð í vikunni, þann 10.-14. ágúst vegna viðhaldsvinnu. 
 
Á verkefnalistalista er:

• viðhald á dælubúnaði í laugarkjallara
• viðhald á flísalögn í heitum pottum
• viðhald á gólfi í karlaklefa
• útskipti á varmaskiptum í laugarkjallara

Auk þess eru framkvæmdir í fullum gangi í vallarhúsnæðinu við að breyta og bæta sundklefana þar. Áætlað er að slípa gólf og leggja á það nýtt "epoxy".

Loks verður tækifærið notað til að djúphreinsa útisvæðið, potta, sundlaug og gufu.
 
Bæjarbúar eru svo boðnir hjartanlega velkomnir í endurbætta laug í næstu viku. 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu