Hamingjuóskir - ÍA í 80 ár
Fátt er verðmætara hverju samfélagi en öflug félagshreyfing, þar sem íbúar gefa af tíma sínum til að halda utan um þroskandi og innihaldsríkt félagsstarf. Í dag eru 80 ár liðin frá stofndegi Íþróttabandalags Akraness. ÍA er kjarninn í félagslífi á Akranesi og hefur litað mannlíf okkar sínum einkennislitum, gulum og svörtum, svo rækilega að enginn velkist í vafa um hverjir eru Skagamenn.
Samfélagið á Akranesi er gott og það er lifandi. Langstærstan hluta af því eigum við að þakka öflugu íþróttastarfi. Hinar fjöldamörgu íþróttagreinar sem starfa innan vébanda ÍA, gegna lykilhlutverki í daglegu lífi okkar. Engin önnur fjöldahreyfing á Akranesi er jafn mikilvæg og virk. Okkar yngsta fólk og allur aldur æfir og keppir undir merkjum ÍA. Akranes er framar öðru þekktara fyrir ÍA og starf félagsins hefur borið hróður bæjarins um allt land og um víða veröld.
Það eru ekki lítil verðmæti. Ekki aðeins er starfið grundvöllur að hollri hreyfingu heldur einnig merkisberi heilbrigðis og bæjaranda. Keppnislið ÍA hafa í 80 ár, verið helsti „sendiherra Akraness“. Á stundum langt umfram stærð samfélagsins, ef það væri mælikvarði. Það gerist ekki af sjálfu sér, það gerist vegna þess að í 80 ár hafa kraftmiklir einstaklingar lagt fram ómælda vinnu og skapað einstaka umgjörð.
Akraneskaupstaður, sem er næstum jafnaldri ÍA, hefur á hverjum tíma leitast við að vera öflugur stuðningur við starfsemi ÍA. Verðmæti þess að eiga slíkt starf verður aldrei metið til fjár. Þannig er framtíð okkar líka, ÍA mun áfram verða kjarninn í að gera gæði þess að búa og lifa á Akranesi, mikil og góð.
Akraneskaupstaður hefur því engan sterkari samstarfsaðila en Íþróttabandalag Akraness. Okkur ber að hlúa að því starfi og styðja það.
Félaginu og Akurnesingum öllum óska ég innilega til hamingju með daginn og árin áttatíu.
Haraldur Benediktsson bæjarstjóri
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





