Fara í efni  

Hvernig getur Akranes orðið ferðaþjónustubær?

Við minnum á opinn íbúafund og vinnustofu í Brekkubæjarskóla á morgun milli kl. 17 og 19 undir yfirskriftinni "Hvernig getur Akranes orðið ferðaþjónustubær?"

Fundurinn er ætlaður fyrir íbúa sem vilja taka þátt í að móta framtíð ferðaþjónustu á Akranesi, en bærinn vinnur nú að mótun nýrrar ferðaþjónustustefnu.
 
Ýmis spennandi erindi eru á dagskrá:

-Pétur Óskarsson formaður Samtaka fyrirtækja í ferðaþjónustu fer yfir sviðið.
-Margrét Björk Björnsdóttir og Kristján Guðmundsson frá Markaðsstofu Vesturlands kynna helstu áherslur í starfsemi þeirra og hvernig sú vinna getur nýst í uppbyggingu ferðamála á Akranesi.
-Sigurður Jökull Ólafsson framkvæmdastjóri Cruise Iceland: "Hvernig tökum við á móti skemmtiferðaskipum?"
 
Að erindum loknum tekur við borðvinna þar sem íbúar fá tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Hér má sjá viðburðinn á Facebook


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu