Heimila notkun á rafrænu meðmælendakerfi
Yfirkjörstjórn á Akranesi hefur tekið ákvörðun sbr. reglugerð um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista fyrir kosningar nr. 254/2024, að heimila notkun rafræns meðmælendakerfis við komandi sveitarstjórnarkosningar sem verða þann 16. maí nk. og hefur kerfið þegar verið opnað á upplýsinga- og þjónustuveitunni Ísland.is. Þeir sem verða í forsvari fyrir framboð sem hyggjast bjóða fram við sveitarstjórnarkosningar geta því nú þegar stofnað meðmælasöfnun á síðunni í sínu nafni með sínum rafrænu skílríkjum og mun nafn og fæðingardagur viðkomandi birtast með söfnuninni.
Kerfið verður opið fyrir skráningu til kl. 12:00 þann 10. apríl nk. en þá rennur framboðsfresturinn vegna sveitarstjórnarkosninganna út.
Samkvæmt framangreindri reglugerð nr. 254/2024 skal hverjum framboðslista sem skilað er til yfirkjörstjórnar sveitarfélags við sveitarstjórnarkosningar, fylgja yfirlýsing um stuðning við listann og fyrir hvaða stjórnmálasamtök hann er fram boðinn, frá kjósendum í hlutaðeigandi sveitarfélagi.
Hjá sveitarfélagi af þeirri stærð sem Akraneskaupstaður er skulu að lágmarki vera 40 meðmælendur og hámarksfjöldi er tvöföld sú tala eða 80 meðmælendur.
Sem fyrr er framboðum heimilt að skila meðmælalista á blaði en yfirkjörstjórn mælist til þess að notast verði við hið rafræna meðmælendakerfi þar sem það auðveldar mjög allt utanumhald og minnkar villuhættu en skilyrði þess að vera meðmælandi er m.a. að hafa öðlast kosningarrétt á kjördegi í þeim kosningum sem meðmælin taka til, einungis unnt að mæla með einu framboði við sömu kosningar og frambjóðendur geta t.d. ekki verið meðmælendur eigin framboðs.
Rétt er að taka fram að meðmæli sem safnað er til stuðnings framboði má ekki nota í öðrum tilgangi. Um miðlun, varðveislu og eyðingu gagna sem safnað verður, eru skýr ákvæði í 14. og 31. gr. reglugerðar nr. 254/2024.
Yfirkjörstjórn á Akranesi mun taka við framboðslistum föstudaginn 10. apríl nk., frá kl. 10:00 til 12:00, á Dalbraut 4, 300 Akranesi, í fundarherberginu Lindin.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





