Gleðilegt Norðurálsmót
Við hjá Akraneskaupstað, eins og skagamenn allir, erum alltaf spennt fyrir Norðurálsmótinu í knattspyrnu. Mótið er einn af stærstu viðburðum sumarsins á Akranesi og þúsundir gesta koma á Akranes. Keppendur og aðstandendur þeirra, ásamt fjölmörgum sem einfaldlega koma til að upplifa stemminguna. Enda mótið hápunktur ársins, hjá þeim sem hafa æft í langan tíma og koma til að taka þátt.
Aðildarfélög Íþróttabandalag Akraness standa árlega fyrir nokkrum stórmótum, í mismunandi íþróttagreinum og er Norðurálsmótið hjá Knattspyrnufélag ÍA vafalaust eitt það umfangsmesta. Öllum þessum mótum fylgir mikið líf í bænum.
Sjálfboðaliðinn ætti á hverju ári að vera maður ársins. Hvort sem er um íþróttalíf, björgunarsveitir, menningarlíf, kórar eða hvað annað er að ræða. Án framlags sjálfboðaliða væri svo ótalmargt fátæklegra og skal framlaga þeirra þakkað hér.
Aðildafélög í röðum ÍA hafa góða og langa reynslu af því að setja upp stórmót sem þessi og á hverju ári er verið að bæta í þjónustu og bæta aðstöðu. Lagður er mikill metnaður í að mótið gangi vel og skapa góða umgjörð.
Norðurálsmótið er mikil ferðahelgi á Akranesi, og miklar annir í bænum og er ástæða til að hvetja alla til að sýna tillitsemi og gera sitt til að greiða götu gesta okkar. Akranes hefur heilmikið að bjóða gestum sínum. Stundum er sagt að Akranes sé ekki ennþá orðinn ferðamannabær – en gleymum ekki að íþróttastarfið, mótin, kappleikir og fjölbeytt menningarlíf draga fjölda gesta á Akranes.
Látum gleðina, upplifun af Akranesi og ánægjuna af samverunni verða það sem við munum best, eftir dvölina á Norðurálsmóti.
Akraneskaupstaður óskar þátttakendum á Norðurálsmóti, gestum okkar og þeim sem bera hitan og þungan af framkvæmdinni, alls hins besta.
- Haraldur Benediktsson, Bæjarstjóri Akraneskaupstaðar.
Þið getið horft á beina útsendingu á Youtube rás ÍATV
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember