Fara í efni  

Feðgarnir Jón og Stefán kjörnir Skagamenn ársins 2023

Af vef Skagafrétta
Af vef Skagafrétta

Þorrablót Skagamanna fór fram laugardaginn 21. janúar, tilkynnt var um kjör á Skagamanni ársins 2023 sem að þessu sinni voru feðgarnir Jón Gunnlaugsson og Stefán Jónsson. 

Hafa þeir síðastliðin ár unnið hörðum höndum að heimasíðunni ,,Á Sigurslóð" sem fjallar um Knattspyrnuna á Akranesi, þar safna þeir upplýsingum og sögum um leikmenn og viðburði liðinna áratuga. 

,,Á sigurslóð er heimasíða um knattspyrnuna á Akranesi, þar sem upplýsingum og sögumolum um leikmenn og viðburði liðinna áratuga er safnað saman á einn stað. Saga þessarar alþýðumenningar er samfélaginu á Akranesi mikilvæg. Hún er hluti af sögu bæjarfélagsins, ímyndar þess og orðspors, en um leið hluti af sjálfsmynd íbúanna og minning um einstaklinga, fjölskyldur og viðburði sem mikilvægt er að halda í heiðri. Merk saga styður við ímynd samfélagsins og gerir það áhugavert fyrir þá sem þar búa eða vilja þangað flytja. Síðan er nútímaleg með áhugaverðu efni og ætlað að ná til fólks á öllum aldri. Með því að gera söguna aðgengilega er opnaður gluggi á leikmenn fortíðar og þann bæjarbrag sem knattspyrnan hafði sterk áhrif á." segir á heimasíðunni. 

Við óskum feðgunum innilega til hamingju með vel verðskuldaða viðurkenningu og hvetjum fólk til að skoða heimasíðuna: Á Sigurslóð.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00