Færðu bænum bekki til minningar um Lovísu Hrund
„Lovísa Hrund hefði orðið 30 ára í fyrra. Við viljum með þessu skapa fallega og varanlega leið til að halda minningu hennar á lofti og um leið halda áfram að minna á þá hættu sem fylgir því að aka undir áhrifum,“ segir Hrönn Ásgeirsdóttir, móðir Lovísu Hrundar Svavarsdóttur, en í dag færðu aðstandendur Lovísu Akraneskaupstað tvo glæsilega granítbekki að gjöf. Annar þeirra verður staðsettur á Akratorgi og hinn við Guðlaugu. "Von okkar er að bekkirnir verði staðir fyrir góðar stundir, samtöl, kyrrð og samveru."
Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri Akraneskaupstaðar veitti bekkjunum viðtöku fyrir hönd Akraneskaupstaðar. Auk foreldra Lovísu Hrundar og annarra fjölskyldumeðlima var hluti af stórum vinkvennahópi hennar viðstaddur afhendinguna.

Lovísa Hrund lést í hörðum árekstri á Akrafjallsvegi þann 6. apríl 2013 aðeins 17 ára gömul. Andlát hennar vakti mikla athygli á hættunni sem fylgir ölvunarakstri og í kjölfarið var stofnaður Minningarsjóður Lovísu Hrundar. Markmið sjóðsins er að stuðla að fræðslu og forvörnum gegn akstri ökutækja undir áhrifum áfengis og annarra fíkniefna.
Sjóðurinn hefur á undanförnum árum stutt við ýmis fræðslu- og forvarnarverkefni auk þess að veita árlega hvatningarverðlaun við útskrift úr Grundaskóla, Brekkubæjarskóla og Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, en Lovísa Hrund stundaði nám í þeim öllum. Skólastjórnendur hverju sinni velja hvaða börn fá verðlaun, en hugmyndin er að verðlauna þá nemendur sem koma vel fram við aðra, eru hjálpsamir og eiga í góðum samskiptum. „Lovísa var svo félagslynd og mikil kærleiksvera, mátti ekkert aumt sjá, var harðdugleg og hjálpsöm,“ segir Hrönn. „Við vildum að verðlaunin væru í þeim anda.“

Hrönn segir að staðsetningin á bekkjunum sé ekki tilviljun. „Akratorg varð fyrir valinu vegna þess að hún var alltaf svo hrifin af sjómönnum og fannst þeir þjóna mikilvægu hlutverki,“ segir Hrönn og bætir því við að faðir Lovísu, Svavar Skarphéðinn Guðmundsson, hafi verið sjómaður. „Svo elskaði hún líka ís svo okkur fannst falleg tilhugsun að fólk gæti setið hér á bekknum á torginu, horft á Sjómanninn og fengið sér ís.“
Akratorg birtist einnig í draumi sem Hrönn dreymdi þó nokkru áður en Lovísa lést. „Ég hef alltaf verið berdreymin. Mig dreymdi að ég stæði á torginu og horfði á glervasa fullan af hvítum liljum sem náði alla leið til himna. Þegar Lovísa lést var fyrsti blómvöndurinn sem ég fékk hvítar liljur í stórum glervasa.“
Hvað staðsetninguna við Guðlaugu varðar segir Hrönn að þar sé einnig hægt að sitja við sjóinn, umkringdur þeim dásamlegu náttúruperlum sem eru á Akranesi.

Granítbekkirnir tveir eru smíðaðir af Steinsmiðju Akureyrar. Á þeim er meðal annars „lógó“ sjóðsins, en í því er nafn Lovísu skrifað með hennar rithönd og bæði hjartað og höndin er teiknað af henni. Hrönn segir að það sé ærið verkefni að berjast gegn akstri undir áhrifum. „En ef forða má einum frá því að setjast ölvaður eða vímaður undir stýri, þá er það nóg fyrir mig.“

Þeir sem vilja styrkja sjóðinn geta lagt inn á reikning 0552-14-408000, kt 490813-0200. Einnig er þeim sem luma á góðri hugmynd um hvernig vinna megi að forvörnum bent á að hafa samband með því að senda skilaboð gegnum Facebook síðu minningarsjóðsins.
Minningarsjóður Lovísu Hrundar er sjálfseignarstofnun.

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2022
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2021
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2020
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2019
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2018
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2017
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2016
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2015
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember





