Fara í efni  

Dagur leikskólans er í dag

Í dag er Dagur leikskólans á Íslandi, en á þeim degi árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara sín fyrstu samtök.

Við hér á Akranesi getum verið einstaklega stolt af okkar frábæru leikskólum, en í dag stíga þar 525 börn sín fyrstu skref á menntabrautinni. Leikskólar á Akranesi hafa um árabil verið með eitt hæsta hlutfall fagmenntaðra starfsmanna á landinu öllu. Þar vinnur starfsfólk ötullega að því á degi hverjum að undirbúa okkar dýrmætasta fólk fyrir næstu æviskeið og áhersla lögð á að skapa öruggt og hvetjandi umhverfi þar sem börn fá tækifæri til að læra í gegnum leik, samskipti og eigin uppgötvanir, bæði inni og úti.

Fyrstu árin skipta sköpum í uppeldi barna og góð menntun hefst með gleði, leik og öryggi.

Akrasel, Garðasel, Teigasel og Vallarsel eru sannarlega rósir í hnappagat okkar Skagamanna og fyrir það ber að þakka.

Takk fyrir ykkar góðu störf, kæra starfsfólk leikskólanna, og til hamingju með Dag leikskólans.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu