Dagskrá Vökudaga borin í hús
Nú styttist óðum í Vökudaga, hina árlegu menningarhátíð Akraness. Hátíðin hefst næstkomandi fimmtudag, þann 22. október og stendur til 1. nóvember.
Á dögunum hófst dreifing á bæklingi í hvert hús með upplýsingum um hátíðina. Í honum má finna svokallaðan QR kóða sem beinir fólki á nýja heimasíðu hátíðarinnar. Á þeirri síðu er hægt að skoða alla dagskrána, velja viðburði eftir mismunandi flokkum, skoða staðsetningu þeirra á korti og búa til sína eigin dagskrá svo fátt eitt sé nefnt.
Gestir hátíðarinnar eru hvattir til að kynna sér vel þá fjölmörgu og glæsilegu viðburði sem í boði eru. Dagskráin er fjölbreytt og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Vökudagar eru jafnframt kærkomið tilefni til að staldra við og njóta þess sem menningarlífið á Akranesi hefur upp á að bjóða.
Einnig er full ástæða til að benda á Facebook síðu Vökudaga þar sem finna má ýmsar upplýsingar og Menningarspjall Vökudaga þar sem listamenn hátíðarinnar eru teknir tali.
Kíkið inn á heimasíðuna, skoðið dagskrána og hefjist handa við að búa til ykkar eigin hátíð.

Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015