Bláfáninn dreginn að húni í þrettánda sinn.
Í morgun var Bláfánanum flaggað á Langasani í þrettánda sinn!
Alþjóðleg vottunarnefnd Blue Flag ( Bláfánans) gerir úttekt á svæðinu og til að fá vottun samþykkta þarf að uppfylla nokkuð mörg skilyrði. Helstu markmið er að vernda lífríki strandsvæðisins, bæta öryggi, draga úr umhverfisáhrifum og efla umhverfisvitund. Sækja þarf um Bláfánavottun á hverju ári. Vottunarstofan Tún er eftirlitsaðili að Bláfánanum en fánatímabil Langasands er frá 19. maí til 31. október.
Börn og starfsfólk af leikskólunum Garðasel, Akrasel og Vallarsel voru viðstödd athöfnina ásamt Haraldi Benediktssyni bæjarstjóra og nokkrum starfsmönnum umhverfis- og skipulagssviðs.
Aðalbjörg Aðalbjörnsdóttir frá Vottunarstofunni Tún flutti smá fræðslu um Bláfánann og hvað felst í þeirri viðurkenningu. Þá afhenti Aðalbjörg Haraldi bæjarstjóra bláfánann og aðstoðuðu nokkur börn við að flagga honum.
Athöfninni lauk svo með söng leikskólabarnanna í blíðunni við Langasand.
Það sem við erum montin af þessari viðurkenningu og fallegu ströndinni okkar. Höldum áfram að ganga vel um náttúruna okkar, hún er okkur dýrmæt.
Fréttasafn
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2024
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015