Bláfáninn dreginn að húni
Í gær var Bláfánanum flaggað á Langasandi í fjórtánda sinn. Bláfáninn er alþjóðlegt umhverfismerki sem er tákn um að umhverfismál, öryggismál og umhverfisfræðslumál séu í hávegum höfð hjá handhöfum fánans. Bláfáninn er einungis veittur þeim baðströndum sem uppfylla ströng skilyrði varðandi umhverfisfræðslu og upplýsingagjöf, vatnsgæði, umhverfisstjórnun, öryggi og þjónustu. Langisandur er eina Bláfánaströnd landsins, en sækja þarf um á hverju ári.
Börn úr leikskólum bæjarins voru viðstödd þegar fáninn var dreginn að húni, en Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri sem hefur veg og vanda af verkefninu fyrir hönd bæjarins aðstoðaði nokkur þeirra við verkið. Á staðnum var einnig Marín Ósk Hafnadóttir frá vottunarstofunni Túni sem sagði nokkur orð um mikilvægi viðurkenningarinnar og þess að hafa aðgang að ósnortinni náttúru, en Tún er eftirlitsaðili Bláfánans.

Fánatímabil Langasands er frá 19. maí til 31. október. Nánari upplýsingar um Bláfánann og Langasand má sjá með því að smella hér.
Til hamingju Skagamenn með þessa viðurkenningu og okkar einstaka Langasand.
Fréttasafn
- 2026
- janúar febrúar mars apríl maí júní
- 2025
- janúar febrúar mars apríl maí júní júlí ágúst september október nóvember desember
- 2024

- 2023

- 2022

- 2021

- 2020

- 2019

- 2018

- 2017

- 2016

- 2015