Fara í efni  

Aðal- og deiliskipulag Flatahverfis - skipulagslýsing

Bæjarstjórn Akraness hefur samþykkt 13. febrúar 2024 lýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Akraness 2021-2033 og deiliskipulagi Flatahverfis Klasa 5 og 6 skv. 30. gr. og 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fyrirhuguð Aðalskipulagsbreyting tekur til VÞ-212.

Fyrirhuguð breyting tekur til breyttrar notkunar á lóð, að heimilt verði að hafa bílaþvottastöð, bílaverkstæði og verslun í núverandi húsnæði á lóð. Minniháttar breytingar á núverandi útlit húss vegna breyttrar notkunar. Annað er óbreytt.

Hægt er að nálgast lýsinguna á www.skipulagsgatt.is, heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is og í þjónustuveri að Dalbraut 4. Ábendingar varðandi skipulagslýsingu eiga að vera skriflegar og berast fyrir 11. mars 2024 í gegnum Skipulagsgátt https://skipulagsgatt.is/issues/2024/136.

Skipulagsfulltrúi Akraneskaupstaðar

Skipulagslýsing sjá hér

Hljóðvist skýrsla sjá hér

 Ljósmengun skýrsla sjá hér


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00