Fara í efni  

Samantekt um vinnufund vegna skipulagsvinnu við Jaðarsbakka

Opinn vinnufundur með íbúum á vegum skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar vegna skipulagsvinnu á Jaðarsbökkum var haldinn fimmtudaginn 22. febrúar s.l. að Garðavöllum.

Skipulags- og umhverfisráð þakkar íbúum fyrir góða þátttöku og mikilvægt framlag til verkefnisins. Fundurinn var opin öllum íbúum á Akranesi, en alls skráðu sig 57 aðilar á fundinn. Markmið fundarins var að fá fram sjónarmið íbúa varðandi frumhönnun Basalts arkitekta fyrir deiliskipulag Jaðarsbakkasvæðisins, en vinna á áfram með þá hönnun í skipulagsvinnunni sem er fram undan fyrir svæðið.

Samantekt um fyrirkomulag fundarins og ábendingar frá íbúum á fundinum má finna hér.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00