Fara í efni  

Fréttasafn

Badmintonfélag Akraness í hálfa öld

Badmintonfélag Akraness fagnaði í gær 50 ára afmæli sínu, en félagið var stofnað þann 11. nóvember árið 1976. Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri mætti á opið hús sem félagið hélt af því tilefni og færði formanni félagsins, Arnóri Tuma Finnssyni, blóm í tilefni dagsins. Fjölmargir litu við í íþróttahúsinu þar sem gestum gafst kostur á að grípa í spaða, rifja upp gamla takta og njóta samverunnar.
Lesa meira

Söngleikurinn Frelsi slær í gegn í Grundaskóla

Uppselt hefur verið á allar þær tíu sýningar sem sýndar hafa verið af söngleiknum Frelsi í Grundaskóla. Það er 10. bekkur skólans sem stendur að baki sýningunni ásamt einvalaliði starfsmanna skólans, kennara og foreldra. Nú í morgun var tveimur sýningum bætt við, þann 18. og 19. nóvember sem verður lokasýning svo áhugasamir þurfa að hafa hraðar hendur að sjá þessa frábæru sýningu.
Lesa meira

Er hægt að slökkva á ljósastaurunum á hrekkjavökunni?

Nemendur í 2. bekk Brekkubæjarskóla mættu í heimsókn á bæjarskrifstofuna á dögunum til að heimsækja Sturlaug Haraldsson bæjarstjóra og spyrja hann spjörunum úr.
Lesa meira

Opinn fundur um þróun og framtíðarhorfur íbúðamarkaðar, bygginga- og skipulagsmála

Föstudaginn 13. nóvember halda HMS og Tryggð byggð í samstarfi við SSV opinn fund um þróun og framtíðahorfur íbúðamarkaðar, bygginga og skipulagsmála á Vesturlandi. Fundurinn verður haldinn í Tónlistarskólanum, Dalbraut 1 á Akranesi, kl. 11:45 og er opinn öllum.
Lesa meira

Fjárfestingar án aukinnar lántöku, lækkandi skuldir og minni álögur

Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2027 ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028–2030 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag, þriðjudaginn 10. nóvember.
Lesa meira

Jólagjöf til starfsfólks Akraneskaupstaðar 2026 - Vill þitt fyrirtæki vera með?

Akraneskaupstaður auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem er jólagjöf kaupstaðarins til starfsfólks sveitarfélagsins í ár.
Lesa meira

Akraneskaupstaður styður björgunarsveitina

Akraneskaupstaður styður árlega við Björgunarfélag Akraness með kaupum á stórum Neyðarkalli og er þar með einn af mörgum stoltum bakhjörlum björgunarsveita á Íslandi. Á meðfylgjandi mynd má sjá Sturlaug Haraldsson veita kallinum viðtöku.
Lesa meira

1443. fundur bæjarstjórnar 10. nóvember

1443. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í Miðjunni að Dalbraut 4, þriðjudaginn 10. nóvember kl. 16
Lesa meira

Starf launafulltrúa auglýst

Akraneskaupstaður óskar eftir að ráða öflugan og þjónustulundaðan launafulltrúa til starfa í mannauðs- og launadeild sveitarfélagsins. Um er að ræða 100% tímabundið starf til eins árs.
Lesa meira

Félagsstarfið gerði víðreist á Vökudögum

Hefð er fyrir því að félagsstarf Akraneskaupstaðar fari í ferðir á vorin og haustin. Á vorin eru önnur sveitarfélög heimsótt, en á haustin er hefð fyrir því að skoða hvað Vökudagar hafa upp á að bjóða. 
Lesa meira
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu