Jól í Garðalundi
26.11.2026
Starfsmenn áhaldahússins hafa undanfarna daga unnið hörðum höndum að því að færa skógræktina í Garðalundi í sannkallaðan jólabúning.
Við hvetjum bæjarbúa til að gera sér ferð í skógræktina, taka jafnvel heitt kakó með í ferðina og njóta jólaljósanna, fallega umhverfisins og kyrrðarinnar.
Við innganginn er nú að finna jólalegan bekk, umkringdan hjörtum og ljósum. Þar er tilvalið að staldra við og taka fallega jólamynd!
Eigið notalega stund í Garðalundi! 





