Fara í efni  

Opið hús - kynningarfundur vegna fyrirhugaðra breytinga á aðal- og deiliskipulagi

Opið hús - kynningarfundur vegna fyrirhugaðra breytinga á aðal- og deiliskipulagi á neðangreindu skipulagi verður fimmtudaginn 6. des. 2018 frá kl. 12.00 til 17.00 á 1. hæð að Stillholti 16-18

Aðal- og deiliskipulag Grenja hafnarsvæði H3, Bakkatúni 30-32

Breytingin felst í nánari skilgreiningu þeirrar starfsemi sem heimil verður á Grenjum. Í deiliskipulagi felst breytingin í nýjum byggingarreit vestan og sunnan við Bakkatún 30 (skipasmíðahús). Lýsing á breytingunni var auglýst með athugasemdarfresti til 25. október sl.

Hér að neðan má nálgast eftirfarandi gögn:

Aðal- og deiliskipulagslýsing Grenja hafnarsvæði H3

Deiliskipulagstillögu Grenja hafnarsvæðis H3

Aðal- og deiliskipulag vegna Flóahverfis

Breyting felst m.a. í stækkun á landnotkunarreit og staðsetningu gróðurbelta. Deiliskipulagsbreytingin felst í fjölgun og minnkun líða og færslu á götu í Flóahverfi. Lýsing á breytingunni var auglýst með athugasemdarfresti til 8. nóvember sl.

Hér að neðan má nálgast eftirfarandi gögn:

Aðal- og deiliskipulagslýsingu Flóahverfis

Deiliskipulagstillögu Flóahverfis

Aðal- og deiliskipulagsbreyting vegna Smiðjuvallasvæðis

Breyting felst m.a. í að landnotkunarreitir eru sameinaðir og skipulagsákvæðum breytt þannig að gert er ráð fyrir blandaðri landnotkun. Deiliskipulagsbreytingin gerir ráð fyrir sameiningu lóða og nær breytingin til lóða nr. 12-14 -16 -18 - 20 og 22 við Smiðjuvelli. Lýsing á breytingunni var auglýst með athugasemdarfresti til 8. nóvember sl.

Hér að neðan má nálgast eftirfarandi gögn:

Aðal- og deiliskipulagslýsingu Smiðjuvallasvæðis

Deiliskipulagstillögu Smiðjuvallasvæðis

 

Eftir kynningu (opið hús) á ofangreindum skipulagsbreytingum (skipulagsgögnum) verða þau lögð fyrir skipulags- og umhverfisráð og bæjarstjórn til frekari afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa skipulagsbreytingarnar mun frestur til athugasemda við þær vera að minnsta kosti 6 vikur.

Sviðstjóri skipulags- og umhverfissviðs

 

 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00