Fara í efni  

Upplýsingar um aðgerðir vegna COVID19

Viðspyrna Akraneskaupstaðar 

Í kjölfar efnahagslegra áhrifa Covid-19 heimsfaraldursins þá hefur Akraneskaupstaður brugðist við með aðgerðum til viðspyrnu. Þessar fyrstu 14 aðgerðir eru nánar útlistaðar hér í frétt Akraneskaupstaðar frá 6. apríl síðastliðnum. 

Greiðslufrestur fasteignagjalda

Ein af aðgerðum Akraneskaupstaðar til viðspyrnu vegna heimsfaraldursins Covid-19 er að bjóða fyrirtækjum og heimilum greiðslufrest fasteignagjalda. Aðgerðinni hefur verið skipt í tvö skref, greiðslufrest og greiðsludreifingu. 

Greiðslufrestur (opnað fyrir umsóknir)

Hægt er að sækja núna um greiðslufrest þriggja gjalddaga, 15. apríl, 15. maí og 15. júní og verða þeir sérstaklega færðir yfir á 15. nóvember, 15. desember og 15. janúar næstkomandi. Allir geta sótt um greiðslufrest og á þetta við þau heimili og fyrirtæki sem eiga við tímabundna örðugleika að stríða vegna tekjufalls og geta nýtt sér þennan valmöguleika.

Greiðsludreifing (hægt að sækja um í október)

Þeir sem hafa sótt um ofangreindan greiðslufrest geta óskað sérstaklega eftir greiðsludreifingu hafi aðstæður heimilis eða fyrirtækis ekkert breyst. Verður það úrræði sérstaklega auglýst um miðjan október næstkomandi. Greiðsludreifing tekur til þessara þriggja gjalddaga sem greiðslufresturinn nær til.

Greiðslufrestur gatnagerðargjalda

Af frekari aðgerðum Akraneskaupstaðar til viðspyrnu vegna heimsfaraldursins Covid-19 má nefna að bjóða á einstaklingum og lögaðilum greiðslufrest vegna gatnagerðargjalda útgefnum í apríl, maí og júní. Hægt er að fresta eindaga reiknings í allt að þrjá mánuði í ljósi þessara sérstakra aðstæðna. Vakin er athygli á því að þessi valkostur er fyrir aðila sem eiga við tímabundna örðugleika að stríða vegna tekjufalls.

Mikilvægt er að umsækjandi geri sér grein fyrir því að ekki verða gefin út byggingarleyfi til framkvæmda á þeirri lóð sem umsókn nær til á. Framkvæmdir tefjast því sem nemur greiðslufresti. 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00