Vinnuskólinn farinn af stað
Vinnuskólinn á Akranesi var settur með formlegum hætti á fimmtudag, þann 11. júní. Tæplega 240 unglingar á aldrinum 15-17 ára sóttu um vinnu, en þar af eru rúmlega fimmtíu 17 ára unglingar.
Hluti af hópnum verður í vinnu í völdum stofnunum bæjarins og hjá íþróttafélögum innan ÍA. Aðrir verða í vinnu við snyrtingu bæjarins í mismunandi hverfum. Elsti hópurinn verður í ýmsum sérverkefnum, en sá hópur hóf störf þann 1. júní.

➡ 15 ára unglingar fá vinnu í 140 klst. eða 20 daga, 7 tíma á dag, sem skiptist á tvö tímabil.
➡ 16 og 17 ára fá vinnu í 210 klst eða 30 daga, 7 tíma á dag allt starfstímabilið.

Á setningu Vinnuskólans bauð Steinar Adolfsson starfandi bæjarstjóri unglingana velkomna til starfa. Þá fór Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri og forstöðumaður Vinnuskólans yfir tilhögun, skipulag og verkefni sumarsins. Ragnar Ingi Pétursson verkstjóri fór yfir þær starfsreglur sem gilda í Vinnuskólanum, 10 einfaldar reglur sem finna má í handbók Vinnuskólans.
Þá fór fram kynning á flokkstjórum, starfsstöðvum, hverfum og helstu verkefnum. Loks kynnti Óðinn Máni Gunnarsson Listavinnuskólann sem hann mun hafa umsjón með. Í ár verður áhersla á leiklist, en Óðinn er menntaður leikari.
Á myndinni hér fyrir ofan má sjá Ragnar Inga verkstjóra og Jón Arnar garðyrkjustjóra ásamt þeim flokkstjórum sem munu stýra vinnu ungmennanna í sumar.
Í lok setningar var tekið á móti fyrirspurnum og eftir hádegi hófst svo vinna við snyrtingu bæjarins.
Við bjóðum þennan stóra og góða hóp unglinga velkominn til starfa í Vinnuskólanum.







