Fara í efni  

Þrjár hönnunarstofur komi með tillögur að framtíð Ægisbrautar

Ægisbraut verður í framtíðinni íbúðarbyggð og í næsta nágrenni bæði leikskóli og opið svæði samkvæmt gildandi aðalskipulagi Akraneskaupstaðar. Skipulags- og umhverfisráð hefur nú samþykkt að þrjár hönnunarstofur verði fengnar til að koma með tillögur að hönnun svæðisins.

Um er að ræða svæðið sem merkt er með bláu á meðfylgjandi mynd. Markmiðið er að unnin verði frumhönnun þar sem áhersla verður lögð á aðgengi, náttúru, íbúðaruppbyggingu og leikskóla, en ætlunin er að hann verði staðsettur á lóðinni við Vesturgötu 119, gegnt Brekkubæjarskóla.

Stofurnar munu fá sex vikur til að vinna verkið. Tillögurnar verða ekki bindandi framkvæmda- eða hönnunargögn heldur eru þær hugsaðar til að skapa heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið, kanna mismunandi nálganir í skipulagi og uppbyggingu og leggja faglegt mat á möguleika og áskoranir svæðisins. Þá er sérstök áhersla lögð á að skoða uppbyggingu nýrrar íbúðarbyggðar, sjóvarnir, leik- og grunnskóla og tengsl við núverandi byggð.

Í verkefnalýsingu segir að tillögur megi vera framsæknar að því gefnu að þær séu rökstuddar, raunhæfar og í samræmi við stefnu sveitarfélagsins og staðaranda svæðisins.

Áætlað er að kynna þær tillögur sem berast á íbúafundi í vor.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu