Fara í efni  

Írskir dagar hefjast í dag

Um 12 þúsund gestir mættu í brekkusöng á Írskum dögum í fyrra.
Um 12 þúsund gestir mættu í brekkusöng á Írskum dögum í fyrra.

Bæjarhátíðin Írskir dagar verður haldin á Akranesi þessa vikuna í 27. sinn, en dagskráin hefst í dag (mánudag) og nær hápunkti um helgina. Í henni má finna eitthvað við allra hæfi, allt frá tónleikum og íþróttaleikjum yfir í jóga, möntrusöng og karnival. Auk þess verða árlegir viðburðir á borð við götugrill, brekkusöng við þyrlupallinn, fjölskyldudagskrá á Akratorgi, tónlistarhátíðina Lopapeysuna og keppnina um rauðhærðasta Íslendinginn.

„Það er svo skemmtilegt hvað hátíðin nær orðið yfir marga daga. Það eru til dæmis tónleikar á hverju kvöldi á Lopapeysusvæðinu frá og með morgundeginum,“ segir Hjörvar Gunnarsson skipuleggjandi hátíðarinnar.

Von er á töluverðum fjölda gesta í bæinn, en á ári hverju hafa um og yfir 10 þúsund manns mætt á brekkusönginn. Um helmingur þeirra kemst að á Lopapeysunni þar sem margir af þekktustu og vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar stíga á svið. Í ár verða það Bubbi Morthens, XXX Rottweilerhundar, Skálmöld, Birgitta Haukdal, Frikki Dór og Emmsjé Gauti svo örfáir séu nefndir.

„Þetta er þriðja hátíðin sem er haldin frá því hún fór í töluverða endurskoðun með það að markmiði að gera hana fjölskylduvænni og fjölga írskum viðburðum í dagskránni,“ segir Hjörvar, en breytingarnar þykja hafa heppnast afar vel. „Það er gaman að segja frá því að í ár erum við með fjölskyldutónleika á fimmtudeginum. Þar fá fjölskyldur og börn sinn eigin brekkusöng við þyrlupallinn hjá Akranesvelli og Biggi Þóris, Rakel Páls, Frikki Dór og Kristmundur Axel koma fram. Sjálfum þykir mér alltaf svo vænt um að sjá hvað bæjarbúar taka virkan þátt og mín upplifun er sú að hverjum einasta Skagamanni þyki vænt um þessa helgi. Það kristallast í götugrillunum þar sem fólk kemur saman að sínu eigin frumkvæði og nýtur þess að vera saman.“

Hjörvar segir að veðurspáin líti vel út og að nú eigi að vera þurrt alla helgina. „Ég skoða auðvitað alltaf bestu spánna hverju sinni,“ segir hann og hlær.

Dagskrá Írskra daga

Spurt og svarað um tjaldsvæðið

Lopapeysan 2026


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu