Fréttasafn
Skólasetning í grunnskólum Akraneskaupstaðar
18.08.2016
Skólasetning í grunnskólum Akraneskaupstaðar fer fram mánudaginn 22. ágúst 2016..
Lesa meira
Sorphirða og rekstur móttökustöðva á Akranesi og í Borgarbyggð 2016-2021
18.08.2016
Akraneskaupstaður og Borgarbyggð óska eftir tilboðum í sorphirðu fyrir heimili í þéttbýli og dreifbýli, umsjón grenndarstöðva, rekstur móttökustöðva, og flutning sorps. Útboð þetta er auglýst á EES svæðinu.
Lesa meira
Fjórtán sóttu um starf sviðsstjóra skóla-og frístundasviðs
16.08.2016
Fjórtán manns sóttu um starf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar en staðan var auglýst laus til umsóknar í sumar. Hlutverk sviðsins er að veita börnum og ungmennum bestu mögulegu tækifæri til leiks, menntunar og frístundastarfs í samvinnu við fjölskyldur og nærsamfélagið og að vera framsækið forystuafl
Lesa meira
Viðhaldsdagar íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum
15.08.2016
Vegna árlegs viðhalds íþróttamiðstöðvarinnar verður lokað í Jaðarsbakkalaug frá mánudeginum 15. ágúst til föstudagsins 19. ágúst. Jaðarsbakkalaug opnar aftur laugardaginn 20.ágúst....
Lesa meira
Ný leiktæki á tjaldsvæðið við Kalmansvík
11.08.2016
Framkvæmdir standa yfir á tjaldsvæðinu í Kalmansvík um þessar mundir en unnið er að því koma niður nýjum leiktækjum á svæðinu. Um er að ræða klifurgrind, jafnvægisbrú og hengirúm frá Kompunni en það er fyrirtækið Krummi sem flytur leiktækin til landsins.
Lesa meira
Blóðsöfnun á Akranesi í dag
09.08.2016
Blóðbankabíllinn er á Akranesi í dag, þriðjudaginn 9. ágúst og eru Skagamenn og nærsveitungar hvattir til þess að koma þar við og gefa blóð. Bíllinn er staðsettur framan við stjórnsýsluhúsið að Stillholti 16-18 frá kl. 10:00-17:00.
Lesa meira
Regnbogafánanum flaggað við skrifstofur Akraneskaupstaðar
04.08.2016
Í tilefni af Hinsegin dögum sem fara fram um helgina verður Regnbogafánanum flaggað fyrir utan skrifstofur Akraneskaupstaðar í dag og fram yfir helgi. Með því vilja bæjaryfirvöld sýna samstöðu með mannréttindabaráttu homma, lesbía og transfólks og óskar þeim gleðilegrar hátíðar.
Lesa meira
VILTU VERA MEMM? Laus störf í Þorpinu
02.08.2016
Frístundamiðstöðin Þorpið er líflegur og skemmtilegur vinnustaður þar sem starfið er í stöðugri þróun. Við leitum að ungu áhugasömu og drífandi fólki til að vinna með börnum og ungmennum í þeirra frítíma næsta vetur. Langar þig að slást í hópinn?
Lesa meira
Bæjarráð lýsir yfir óánægju með reglugerð um strandveiðar
29.07.2016
Á fundi bæjarráðs í gær, 28. júlí var farið yfir bréf frá Sæljóni, félagi smábátaeigenda á Akranesi. Í bréfinu er skerðingu um 200 tonn á D svæðinu, sem nær frá Höfn í Hornafirði að Mýrum, mótmælt harðlega. Bæjarráð tekur undir áhyggjur smábátaeigenda á Akranesi og sendi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Lesa meira
Bæjarráð skorar á samgönguyfirvöld að flýta framkvæmdum við Vesturlandsveg
28.07.2016
Á fundi bæjarráðs Akraness þann 28. júlí var lögð fram skýrsla Vífils Karlssonar hagfræðings um ástand vega á Vesturlandi. Í skýrslunni sem var unnin fyrir samtök sveitarfélaga á Vesturlandi kemur fram að fjárveiting til Vesturlandsvegar nemur um helming af fjárveitingu til Reykjanesbrautar á 10 ára tímabili, eða á árunum 2005 til 2014. Bæjarráð bókaði eftirfarandi
Lesa meira