Fara í efni  

Yfirlýsing frá bæjarstjórn Akraness

Bæjarstjórn Akraness fagnar áformum fiskvinnslufyrirtækisins Ísfisks hf um að hefja starfsemi á Akranesi í kjölfar þess að náðst hefur samkomulag um kaup félagsins á hluta fasteigna HB Granda hf að Bárugötu 8-10 á Akranesi.

Bæjarstjórn býður fyrirtækið og starfsfólk þess hjartanlega velkomið í bæjarfélagið og er það góð viðbót við þá fjölbreyttu atvinnustarfsemi sem þegar er til staðar á Akranesi og mun styrkja fiskvinnslu á Akranesi og afleidda starfsemi.  Ánægjulegt er að forsvarsmenn HB Granda hafi unnið markvisst að því að ljúka samningum við Ísfisk í dag þegar bolfiskvinnslu HB Granda á Akranesi stöðvast.

Er það von bæjarstjórnar að í þessu felist enn frekari tækifæri fyrir fiskvinnslu á Akranesi sem tryggi okkar fólki og nýjum íbúum með sérhæfingu á þessu sviði fleiri stoðir en eru til staðar í dag.  Áfram verður unnið að frekari lausnum svo Akraneshöfn muni styrkjast sem fiskihöfn, þannig að Akranes verði áfram rótgróinn útgerðarbær og það skapist farvegur fyrir frekari nýsköpun og atvinnusókn.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00