Hefur þú skoðað nýja heimasíðu Vökudaga?
21.10.2026
Á morgun, fimmtudaginn 22. október, hefjast Vökudagar hér á Akranesi. Árleg menningarhátíð bæjarins sem stendur yfir í ellefu daga og inniheldur tugi menningarviðburða af öllu tagi.
Ný heimasíða hátíðarinnar, www.vokudagar.is, var opnuð á dögunum, en þar geta hátíðargestir skoðað dagskrána eins og hún leggur sig.
Við höfum tekið saman gagnlegar leiðbeiningar fyrir vefsíðuna svo auðveldara sé að finna viðburði, skoða dagskrána, rata á milli staða og skipuleggja Vökudaga eftir eigin höfði. Leiðbeiningarnar má sjá með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.
Gleðilega Vökudaga!
Gleðilega Vökudaga!






