Vökudagar 2026 – Vertu með!
17.08.2026
Menningarhátíðin Vökudagar 2026 verður haldin dagana 22. október til 1. nóvember og nú leitum við að fjölbreyttum viðburðum, hugmyndum og samstarfi til að gera hátíðina enn glæsilegri.
Vökudagar hafa verið haldnir á Akranesi frá árinu 2002 og hafa vaxið og dafnað með hverju árinu. Hátíðin er vettvangur fyrir listir, menningu, sögu, sköpun og samveru þar sem íbúar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og listafólk sameinast um að skapa einstaka upplifun fyrir bæjarbúa og gesti.
Hvort sem hugmyndin þín er stór eða smá, hefðbundin eða nýstárleg, viljum við heyra frá þér. Fjölbreytileikinn er það sem gerir Vökudaga að þeirri hátíð sem hún er.
Ef þú ert með spurningar eða vilt ráðfæra þig við einhvern um hugmynd áður en þú skráir hana er þér velkomið að hafa samband við verkefnastjóra menningarmála á netfanginu mannlif@akranes.is.
Skráðu viðburðinn þinn með því að smella á hlekkinn hér að neðan og vertu hluti af Vökudögum 2026!






