Fara í efni  

Vitinn, félag áhugaljósmyndara fær menningarverðlaun Akraneskaupstaðar

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri, Gunnar Viðarsson formaður Vitans og Ingþór Bergmann formaður menni…
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri, Gunnar Viðarsson formaður Vitans og Ingþór Bergmann formaður menningar- og safnanefndar.

Það er Vitinn,  félag áhugaljósmyndara á Akranesi sem fær menningarverðlaun Akraneskaupstaðar árið 2015. Menningarverðlaunin eru afhent einu sinni á ári á menningarhátíðinni Vökudögum en hátíðin stendur núna yfir frá 29. október til 8. nóvember. Verðlaunin eru veitt einstaklingi eða hópi sem hefur á einhvern hátt skarað fram úr í menningarlífi Akraness. Að þessu sinni er það öflugur félagsskapur sem fær verðlaunin en félagið Vitinn, sem er fimm ára gamall félagsskapur áhugaljósmyndara, er mjög  virkt í sýningarhaldi og fræðslu og öðrum til fyrirmyndar í bæjarfélaginu. Þá hefur Vitinn tvisvar gefið út ljósmyndabók sem er nokkurs konar ársskýrsla félagsins og einnig hafa félagar haldið fyrirlestra og kynningar um ljósmyndun í grunnskólum bæjarins samkvæmt samkomulagi við Akraneskaupstað. Félagsmenn eru rúmlega 70.

Verðlaunin voru afhent við opnun ljósmyndasýningar Vitans í kvöld. Það var Ingþór Bergmann Þórhallsson formaður menningar- og safnanefndar sem gerði grein fyrir vali nefndarinnar en nefndin lítur meðal annars til þess hversu virkir þátttakendur hafa verið á því ári sem verðlaunin eru veitt. Þetta er í 9 sinn sem menningarverðlaun Akraness eru veitt.

Akraneskaupstaður óskar félagsmönnum Vitans innilega til hamingju.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00