Vit-Hit leikarnir í Jaðarsbakkalaug 30. maí -1. júní
28.05.2025
Helgina 30.maí. - 1. júní verða VIT-HIT leikarnir (Akranesleikarnir) í sundi haldnir í Jaðarsbakkalaug. Eins og undanfarin ár verður sundlaugin lokuð föstudaginn 30.maí frá kl. 13. Sundlaugin opnar aftur fyrir almenning mánudaginn 2. júní kl. 6.30
Hefðbundinn opnunartími er í þreksalinn (lokað í sal 2) en athugið að ekki verður hægt að nota búningsaðstöðu þessa daga.
Við bendum á að opið er í Guðlaugu samkvæmt hefðbundnum opnunartíma.