Viltu vinna úti í sumar?
19.03.2026
Vinnuskóli Akraness leitar að öflugum flokkstjórum fyrir sumarið 2026. Flokkstjórar hafa umsjón með hópum unglinga á aldrinum 14–17 ára og leiðbeina þeim í fjölbreyttum verkefnum, meðal annars við garðyrkju, umhirðu bæjarlandsins og ýmis skapandi og fræðandi verkefni.
Frábært tækifæri fyrir þá sem eru 20 ára eða eldri, hafa gaman af útiveru, samskiptum og því að vinna með ungu fólki – þar sem engir tveir dagar eru alveg eins.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Akraness eða Sameyki.
Vertu hluti af sumrinu í Vinnuskólanum!





