Vilja byggja upp gagnaverssvæði í Grjótkelduflóa
Akraneskaupstaður og félag í eigu Alexanders Eiríkssonar, Bjarna Ármannssonar og Benedikts Bjarnasonar hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu gagnaverssvæðis í Grjótkelduflóa á Akranesi.
Eigendur félagsins munu í góðu samstarfi við Akraneskaupstað leiða undirbúning og þróun verkefnisins. Gert er ráð fyrir að gagnaverssvæðið verði byggt upp í sjálfstæðum áföngum, sem teknir verða í notkun eftir því sem verkefninu vindur fram.
Mikil áhersla verður lögð á að þróa lausnir til að nýta glatvarma frá gagnaverunum, meðal annars til framleiðslu á heitu vatni. Samhliða verður stefnt að uppbyggingu hvers konar atvinnustarfsemi á svæðinu sem getur nýtt varmann, til dæmis í matvælaframleiðslu, ylrækt og annarri varmaháðri starfsemi. Með því skapast tækifæri til betri orkunýtingar, aukinnar verðmætasköpunar og fjölbreyttari atvinnuuppbyggingar á Akranesi.
Viljayfirlýsingin gildir í 24 mánuði og stefna aðilar að því að ná samkomulagi um framhald og nánari útfærslu verkefnisins innan þess tíma.

Sturlaugur Haraldsson bæjarstjóri fagnar því að viljayfirlýsingin hafi verið undirrituð:
„Það er gríðarlegur vöxtur í uppbyggingu gagnavera um þessar mundir, meðal annars vegna örrar framþróunar gervigreindar. Það er mikið gleðiefni fyrir Akraneskaupstað að þessir öflugu Skagamenn hafi gengið til samstarfs við sveitarfélagið um þróun gagnavers og tengdrar atvinnustarfsemi í Grjótkelduflóa.
Svæðið er sérlega vel til þess fallið að hýsa starfsemi af þessu tagi. Þar er gott landrými, öflugar samgöngur og nálægð við fjölbreyttan vinnumarkað. Staðsetning Akraness er jafnframt afar hentug og svæðið nýtur stöðugleika gagnvart eldsumbrotum.
Gert er ráð fyrir að fjöldi sérhæfðra starfa fylgi uppbyggingunni. Þá mun fjöldi fólks koma að uppbyggingunni á framkvæmdatíma og verkefnið skapa margvísleg afleidd störf og ný tækifæri fyrir atvinnulífið á Akranesi.
Miklar framfarir hafa orðið á undanförnum árum í nýtingu glatvarma frá gagnaverum. Sú þróun skapar spennandi möguleika á frekari atvinnuuppbyggingu í fjölbreyttum greinum og getur stuðlað að því að orkan nýtist með enn hagkvæmari og sjálfbærari hætti.
Þetta er metnaðarfullt og spennandi verkefni sem getur haft verulega jákvæð áhrif á atvinnulíf og samfélag á Akranesi. Það verður afar ánægjulegt að fylgjast með framvindu þess.“
Bjarni Ármannsson segist sjá mikil tækifæri í uppbyggingu gagnaverssvæðis á Akranesi.
„Staðsetningin, aðstæður til áfangaskiptrar uppbyggingar og möguleikar á nýtingu glatvarma skapa sterkan grunn að verkefni sem getur laðað að sér fjárfestingu og stutt við fjölbreytt atvinnulíf til framtíðar.“





