Við leitum að bókara
13.09.2026
Almennt - tilkynningar
Akraneskaupstaður leitar að bókara sem hefur metnað til að ná árangri, vinnur sjálfstætt og býr yfir góðri samskiptahæfni. Ef þú hefur gaman af því að vinna með fólki og vilt taka þátt í að skapa jákvæð áhrif í öflugu teymi, þá er þetta starf fyrir þig.
Um fullt starf er að ræða en starfið heyrir undir fjármála- og innkaupadeild. Deildin hefur í höndum fjárstýringu, reikningshald, yfirumsjón með fjárhagsáætlun, lánastýringu, umsjón með gjaldskrám, innkaupamál og fleira.
Fjárhagskerfi Akraneskaupstaðar er Microsoft Dynamics 365 Business Central.
Nánari upplýsingar um helstu verkefni, hæfniskröfur og fríðindi í starfi er að finna á Alfreð.is, en þar er jafnframt hægt að sækja um starfið.
Umsóknarfrestur er til 20. september næstkomandi.





