Verklok tefjast til hádegis á föstudag
04.11.2026
Almennt - tilkynningar
Vinna hefur staðið yfir við hjáleið á gatnamótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar frá því á mánudag og gatnamótin lokuð af þeim sökum, en þar á að vera hringtorg í framtíðinni.
Áætlanir gerðu ráð fyrir að lokunin stæði yfir þar til síðdegis á morgun, fimmtudag. Úrkomuspá veldur því að lokunin mun standa örlítið lengur eða til hádegis á föstudag þar sem leggja þarf klæðningu á hjáleiðina.
Hjáleið er um Innnesveg milli gatnamóta við Rein og inn á Akranes, sjá meðfylgjandi mynd.





