Fara í efni  

Valgerður ráðin sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs

Á fundi bæjarstjórnar Akraness þann 1. september var samþykkt einróma að ráða Valgerði Janusdóttur kennara og mannauðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur í stöðu sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar. Valgerður er kennari með B.Ed gráðu frá Kennaraháskóla Íslands, BA gráðu í sérkennslufræðum frá sama skóla og diplómu í uppeldis- og menntunarfræðum með áherslu á stjórnun. Valgerður hefur starfað sem stjórnandi hjá Reykjavíkurborg síðastliðin 10 ár en hún hefur gengt starfi mannauðsstjóra og staðgengils sviðsstjóra sameinaðs skóla- og frístundasviðs frá árinu 2011 og þar áður var hún mannauðsstjóri menntasviðs Reykjavíkurborgar og jafnframt staðgengill sviðsstjóra. Hún hefur einnig gengt störfum kennsluráðgjafa, aðstoðarskólastjóra Vesturbæjarskóla í afleysingum, verið umsjónarkennari og deildarstjóri í sama skóla og sérkennari við Heyrnleysingjaskólann.  Valgerði  hafa verið falin fjölmörg trúnaðar- og stjórnunarstörf í tengslum við störf sín og má þar meðal annars nefna setu hennar í hagræðingarteymi skóla- og frístundasviðs sem er með 160 stofnanir og ársveltu upp á ríflega 40 milljarða.

Valgerður er gift Jakobi Þór Einarssyni leikara og eiga þau þrjú uppkomin börn.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00