Fara í efni  

Undirbúningur hafinn fyrir leikskólainnritun barna fædd í janúar og febrúar 2016

Foreldrar barna sem fædd eru í janúar og febrúar 2016 hafa nú fengið boð um leikskóladvöl í leikskólum Akraneskaupstaðar í byrjun janúar 2018. Haft hefur verið samband símleiðis við foreldra allra barna sem eru fædd í janúar og febrúar 2016 og þau fengið boð um leikskólavist. Formlegt erindi frá leikskólastjórum mun berast í næstu viku.

Um er að ræða mjög mikilvæga þjónustuaukningu fyrir foreldra yngri barna á Akranesi.

Horfið hefur verið frá því að svo stöddu að opna deild yngri barna í húsi Skátafélagsins, þar sem nægilegt pláss til að mæta núverandi þörf er til staðar í leikskólum bæjarins. Gert er ráð fyrir því að haustið 2018 fái öll börn á Akranesi fædd í janúar, febrúar, mars og apríl 2017 pláss á leikskóla.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00