Fara í efni  

Umfangsmiklar framkvæmdir á götum og stígum

Í upphafi vikunnar hófust framkvæmdir við endurbætur á göngustíg við Leyni.
Í upphafi vikunnar hófust framkvæmdir við endurbætur á göngustíg við Leyni.

Á ári hverju eru víða framkvæmdir í bænum, til að mynda á götum og stígum.

Hér fyrir neðan má sjá samantekt á hluta af þeim verkefnum sem voru unnin á liðnu ári þegar kemur að viðhaldi og nýgerð gatna og stíga. Þar fyrir neðan má sjá lista yfir þau verkefni sem framundan eru á þessu ári.

Þess ber að geta að listinn er langt í frá tæmandi en gefur einhverja mynd af því sem hefur verið gert og því sem er á dagskrá.


2025

Hafnarbraut: Á Hafnarbraut voru steypuflekar endurnýjaðir með malbiki og gangstígur hellulagður auk þess sem bekkir voru settir við gangstíginn. Áhugasamir geta til að mynda séð afraksturinn í þessu myndbandi hér þar sem rætt var við Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóra um verkefni liðins árs (Hafnarbrautin sést eftir rétt rúmar 6 mínútur).



Suðurgata: Steypuflekar endurnýjaðir með malbiki. Framundan eru frekari framkvæmdir á Suðurgötu.

Ketilsflöt: Við Ketilsflöt var gert við skemmdir í malbiki.

Grundaskóli: Framkvæmdir á lóð skólans. Göngustígur norðan skólans var endurgerður og malbikaður. Hluti af leiksvæði var einnig lagfært. Framundan eru frekari framkvæmdir á lóð skólans, en sú vinna er í hönnunarferli.

Asparskógar: Töluverðar framkvæmdir voru í Asparskógum á árinu og eyjan á meðfylgjandi mynd var hluti af þeim. Í augnablikinu er verið að leggja lokahönd á gangstétt á mótum Aspar- og Beykiskóga. Þegar þeirri vinnu lýkur er gerð göngu- og hjólastíga í hverfinu lokið og hægt að ganga allan hringinn.

Beykiskógar: Við Beykiskóga voru gerðir bæði göngu- og hjólastígar auk þess sem gangstétt var steypt.

Álfalundur: Við Álfalund var gerður nýr göngustígur, gangstétt var steypt og lagðar grasþökur.

Kirkjubraut/Skólabraut: Malbik fræst upp og endurlagt á nokkrum stöðum.

Vesturgata/Vallholt: Á mótum Vallholts og Vesturgötu voru gatnamótin viðgerð og malbikuð auk hluta af báðum götum eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.


2026

Framundan á þessu ári eru framkvæmdir víða um bæinn, bæði endurnýjun og viðhald.

Þess ber að geta að á verktíma geta ýmis verkefni bæst við og önnur verið felld út á móti ef nauðsyn krefur. Auk þess sem fram kemur hér að neðan munu verða gerðar nýjar gangstéttir á völdum stöðum og upphækkaðar gönguþveranir auk þess sem gert verður við gangstéttir og fleira.

Suðurgata: Endurnýjun steypufleka með malbiki, til að mynda á því svæði sem sjá má á meðfylgjandi myndum fyrir ofan og neðan.

Gatnamót Stillholts og Dalbrautar: Endurnýjun. Hér er ætlunin að saga götuyfirborðið með gangstétt beggja megin, fjarlægja steypta götufleka og leggja tvö lög af malbiki.

Gatnamót Akralundar og Asparskóga: Við þessi gatnamót á að víkka beygju til að auka útsýni og umferðaröryggi eins og sjá má á meðfylgjandi mynd og teikningu þar fyrir neðan.

Umferðarljósin við Stillholt: Við umferðarljósin verða steypuflekar brotnir upp og malbikað. Einnig við gatnamót Kirkjubrautar og Háholts.

Breiðargata, göngustígur: Hér er ætlunin að hreinsa yfirborð með götu, fylla í með grús, þjappa og slétta gangstíg sem liggur í átt að bílastæðinu við Akranesvita.

Leynir, göngustígur: Hér við Leyni verður fyllingin hækkuð í göngustíg og yfirborð þjappað og sléttað. Framkvæmdir við þetta verkefni hófust fyrr í vikunni og eru á lokametrunum svo þess er ekki langt að bíða að hægt verði að ganga meðfram sjónum og Leyni á endurnýjuðum malarstíg. Leiðina má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan, en það sést í fullri upplausn með því að smella á kassann í hægra horni til að stækka það.

Höfðavík: Stígur við Höfðavík verður breikkaður umtalsvert, nánar tiltekið í tvo metra. Framkvæmd sem mun nýtast bæði hestafólki og gangandi vegfarendum á þessu fallega svæði.

Þjóðbraut, stoppistöð: Jarðvegsskipta skal undir stíg við fyrirhugaða nýja stoppistöð fyrir strætó sem tengist Þorpinu og tengingu við núverandi stíg. Malbika stíg og ganga frá með þökum. Teikning.

Hagaflöt, endurnýja stíg: Fjarlægja skal eldra malbik, hækka stíg um 0,5 m, jöfnunarlag, malbika nýjan stíg og ganga frá með þökum. Grafa fyrir og leggja drenlögn öðrum megin við stíginn, tengja út í götu.

Merkigerði og Höfðabraut, eyjur: Steypa gangstétt út í gönguleið til þrengingar á aksturssvæði, með niðurfellingu, doppuhellum og stálhandrið sett til aflokunar.

Asparskógar: Upphækkuð gönguþverun á vesturenda Asparskóga, við Ketilsflöt

Sem fyrr segir er þessi upptalning ekki tæmandi, en gefur einhverja mynd af þeim fjölbreyttu verkefnum sem framundan eru hjá Akraneskaupstað á árinu þegar kemur að götum og stígum.


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu