Um 130 börn heimsóttu slökkvistöðina
“Þetta hefur verið árviss viðburður í um það bil sjö ár,” segir Sigurður Þór Elísson eldvarnarfulltrúi hjá slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar um heimsókn 130 leikskólabarna á slökkvistöðina þar sem þau fengu að skoða tæki slökkviliðsins, prófa að sprauta úr brunaslöngu og hittu brunabangsann Björnis, sem flutti til Íslands frá Noregi á síðasta ári og hefur aðstoðað slökkvilið víða um landið síðan við fræðslu og forvarnarstarf.
Um var að ræða nokkurs konar lokahátíð, en slökkviliðið hefur unnið verkefni með börnunum í vetur um brunavarnir heimilisins. Börnunum var skipt í fjóra hópa og hver hópur var á svæðinu í um klukkustund. Hápunkturinn var að fá að sprauta á kennarana. “Við krakkarnir gerum samning,“ segir Sigurður Þór. “Ef þau eru tilbúin að ræða við foreldra og forráðamenn um eldvarnir heimilisins þá fá þau að sprauta á kennarana."





