Tónleikum Karlakórsins Heimis aflýst
27.03.2026
Almennt - tilkynningar
Til stóð að Karlakórinn Heimir úr Skagafirði myndi halda tónleika í Tónbergi í kvöld, en þeim hefur nú verið aflýst vegna veðurs. Miðað við veðurspá eru miklar líkur á að Holtavörðuheiðin verði lokuð.
Heimismenn hyggjast freista þess að halda tónleika á Akranesi síðar, en óvíst er hvenær það verður.





