Fara í efni  

Tilraunasiglingum milli Akraness og Reykjavíkur lokið í bili

Áætlunarsiglingar hófust milli Akraness og Reykjavíkur þann 19. júní síðastliðinn. Um var að ræða tilraunaverkefni sem átti að standa til sex mánaða en lauk mánuði fyrr þar sem ferjan var seld af eigendum hennar til Spánar. Sæferðir Eimskip sáu um rekstur ferjunnar og var ferjan í leigu frá Noregi. Alls voru það rúmlega 3600 manns sem nýttu sér ferjuna þessa fimm mánuði. 

Viðræður um áframhaldandi ferjusiglingar á næstu ári eru hafnar og mun það vonandi skýrast fljótlega hvort að af verður. Akraneskaupstaður telur mikilvægt að hafa fjölbreytileika í almenningssamgöngum fyrir íbúa og að áframhaldandi ferjusiglingar myndum nýtast íbúum vel. Jafnframt myndi það gefa aukin tækifæri fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu á Akranesi og á Vesturlandi öllu. „Mikilvægt er að markaðssetja ferjusiglingar með góðum fyrirvara og er það von okkar von að samningaviðræður náist sem fyrst og að við getum byrjað að kynna siglingar á ný milli Akraness og Reykjavíkur“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00