Fara í efni  

Deiliskipulagi lokið - breytingu á deiliskipulagi Skógahverfis 2. áfanga

Uppfært 28. september 2015: Deiliskipulag Skógahverfis 2. áfanga er lokið með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda þann 25. september 2015.


Bæjarstjórn Akraness auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Skógahverfis 2. áfanga samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða breytingu á skipulagsskilmálum á þá leið að nýtingarhlutfall einbýlishúsalóða á deiliskipulagssvæðinu verður 0,35 í stað 0,50. 

Breytingartillagan verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins 1. hæð að Stillholti 16-18, Akranesi frá og með 16. sept. til  og með 30. okt. 2015 og hér á heimasíðu Akraneskaupstaðar. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytingartillöguna.

Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út föstudaginn 30. okt. 2015. Skila þarf inn skriflegum athugasemdum í þjónustuver Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18 eða í tölvupósti. Þeir sem ekki gera athugasemdir við breytingartillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkir henni.


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00