Þjónustuþegar geta sótt um garðslátt
20.05.2026
Almennt - tilkynningar
Þeir íbúar sem eru með umfangsmikla þjónustu hjá stuðnings- og stoðþjónustu Akraneskaupstaðar (metnir í fyrsta forgangi) geta sótt um að fá garðslátt á lóðum sínum.
Vinnuskólinn mun sinna slættinum.
Hægt er að sækja um með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan og fylla út þar til gert eyðublað.





