Þjóðaratkvæðagreiðsla á laugardag - auðlesið mál
25.08.2026
Næstkomandi laugardag, þann 29. ágúst, fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB).
Miðstöð um auðlesið mál og Landskjörstjórn hafa útbúið auðlesnar upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðsluna. Markmiðið er að tryggja að öll hafi aðgang að skýrum upplýsingum um lýðræðisleg réttindi sín. Við hvetjum íbúa til að smella á hlekkinn hér fyrir neðan og kynna sér málið.
Hér má einnig finna auðlesinn bækling sem inniheldur helstu upplýsingar.
Eins og fram hefur komið verður kjörstaður á Akranesi í Grundaskóla og kjörfundur stendur frá kl. 09:00-22:00 á laugardag.





