Fara í efni  

Þessi hlutu umhverfisviðurkenningar 2026

Í dag voru veittar Umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar fyrir árið 2026 í fimm mismunandi flokkum. Viðurkenningarnar eru veittar ár hvert, en þeim er ætlað að vinna með umhverfisvitund, skapa umhyggju fyrir bænum og umhverfi hans og vekja þannig athygli á atriðum sem skipta uppbyggingu og framtíð bæjarins máli.


Tré ársins
Viðurkenningu fyrir tré ársins hlutu þau Ragna Hannesdóttir og Valdimar Magnússon, Esjuvöllum 13, fyrir einstaklega fallegan og stæðilegan sýrenurunna, sem vert er að vekja athygli á. Sýrena þrífst vel á Akranesi, blómstrar og ilmar vel fyrri hluta sumars.

Falleg aðkoma
Íbúar Furugrundar 44, Ingibjörg Jónsdóttir og Guðmundur Sæmundsson, fyrir "skemmtilega götumynd af framhlið lóðar. Lóðin er opin, með góðu samspili milli götu og húss, fjölbreytilegum gróðri sem gleður augu þeirra sem framhjá fara".

Snyrtileg fyrirtækjalóð
Gísli Jónsson ehf. – Ægisbraut 13a. Gísli og kona hans Erla Dís Sigurjónsdóttir fyrir "áberandi snyrtilegt umhverfi við allar starfsstöðvar fyrirtækisins. Viðhald og fallegt heildaryfirbragð á húsum er einnig til fyrirmyndar."

Falleg einbýlishúsalóð
Vesturgata 45, Margrét Þorvaldsdóttir og Kristján H. Kristjánsson fyrir "einstakan og skemmtilega hannaðan garð allt í kringum húsið. Húsinu sjálfu er líka vel við haldið, sérlega fallegt eldra hús með tignarlegri ösp út við garðvegginn sem setur svip á götumyndina. Garðurinnn er hannaður og unnin af núverandi eigendum."

Fallegt eldra einbýlishús
Háteigur 16, Ingibjörg Finnbogadóttir og Ketill Björnsson fyrir "sérstaka natni og nákvæmi í vinnu við uppgerð á gömlu húsi ásamt bílskúr. Þá er garðurinn mjög opinn og stílhreinn, samræmist vel húsinu. Húsið er byggt 1931 og eru einungis tveir eigendur að því frá upphafi."


Við óskum öllum þeim sem hlutu viðurkenningar í ár hjartanlega til hamingju og þökkum fyrir þeirra framlag til að fegra bæinn.

 

 

 

 


Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?

   
Fara efst
á síðu