Þekkir þú einhvern sem á skilið að fá Bláskelina?
06.10.2026
Almennt - tilkynningar
Umhverfis- og orkustofnun kallar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar - hringrásarverðlauna.
Stofnunin vill finna og vekja athygli á fólki, fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum um allt land sem hafa innleitt lausnir eða verkefni á sviði hringrásarhagkerfis – hvort sem það er með því að draga úr sóun, lengja líftíma vara, gera við, endurnýta, deila, halda hráefnum í umferð eða skapa ný verðmæti úr auðlindum sem áður fóru til spillis.
Þekkir þú einhvern sem á skilið að fá Bláskelina?
Hægt er að fá nánari upplýsingar og finna tilnefningarhnapp með því að smella hér fyrir neðan. Hægt er að senda inn tilnefningar nafnlaust.





