Fara í efni  

Sumarstörf hjá Akraneskaupstað

Eftirfarandi sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Akraneskaupstað:

Störf flokkstjóra (100% og 50% störf) við Vinnuskóla Akraness, fyrir 20 ára og eldri 

Akraneskaupstaður óskar eftir flokkstjórum í sumar við störf hjá Vinnuskóla Akraness. Um er að ræða tímabilið ca. 20. maí til 20. ágúst.

Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 16. mars. Nánari upplýsingar gefur Einar Skúlason rekstrarstjóri Vinnuskóla Akraness í síma 433-1056 eða 863-1113. 


Starf verkstjóra við almennt viðhald og umhirðu á opnum svæðum, fyrir 25 ára og eldri

Akraneskaupstaður auglýsir eftir verkstjóra yfir starfshóp við almennt viðhald, umhirðu og framkvæmdir opinna svæða í umsjón Akraneskaupstaðar. Um er að ræða tímabundið starf frá 1. apríl til 31. október. Umsækjendur þurfa að vera 25 ára og eldri og með bílpróf.  

Helstu verkefni:

  • Umhirða og viðhald útivistarsvæða, leiksvæða og annarra opinna svæða
  • Umhirða gróðurs
  • Gróðursetning trjágróðurs og sumarblóma
  • Önnur tilfallandi verkefni

Kröfur um hæfni verkstjóra:

  • Reynsla af verkstjórn og mannaforráðum
  • Verklagni og útsjónarsemi
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Skipulagshæfni
  • Jákvæðni
  • Þekking á gróðri æskileg

Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 16. mars. Nánari upplýsingar gefur Íris Reynisdóttir garðyrkjustjóri Akraneskaupstaðar í síma 433-1000. 


Störf við almennt viðhald og umhirðu á opnum svæðum, fyrir 18 ára og eldri

Akraneskaupstaður auglýsir eftir starfsfólki við almennt viðhald, umhirðu og framkvæmdir opinna svæða í umsjón Akraneskaupstaðar. Starfstími er 3 - 6 mánuðir yfir tímabilið 1. maí til 31. október. Umsækjendur þurfa að vera 18 ára og eldri.

Helstu verkefni:

  • Umhirða og viðhald útivistarsvæða, leiksvæða og annarra opinna svæða
  • Umhirða gróðurs
  • Gróðursetning trjágróðurs og sumarblóma
  • Önnur tilfallandi verkefni 

Hér er sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar en einnig er hægt að sækja um í þjónustuveri bæjarins að Stillholti 16-18, 1. hæð. Umsóknarfrestur er til og með 16. mars. Nánari upplýsingar gefur Íris Reynisdóttir garðyrkjustjóri Akraneskaupstaðar í síma 433-1000. 


   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00