Sumaropnunartími í Guðlaugu framlengdur
		
					08.09.2022			
										
	Til að mæta mikilli eftirspurn hefur verið samþykkt í bæjarráði að framlengja sumaropnunartíma í Guðlaugu. Sumaropnunartíminn mun gilda út september og þá skoðað hvort hann verði framlengdur enn frekar með því markmiði að þetta einstaka mannvirki nýtist með sem bestum hætti.
Við hlökkum til að taka vel á móti ykkur í Guðlaugu. 
 
					 

 
  
 



